Skautafjör

Skautafjör

Hvað viltu láta gera? Setja upp almenningsskautasvell í Breiðholtinu. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að það eru bara tvö skautasvell á öllu höfuðborgarsvæðinu. Þeir krakkar og ungmenni sem eru að æfa skautaíþróttir gjalda þess að fá ekki að stunda sína íþrótt nema að æfingatímar séu utan almenningstíma og þurfa því að vera að æfa ýmist eldsnemma á morgnana fyrir skóla og um helgar og eins seint á kvöldin. Almenningssvell hingað og þangað um borgina myndu því leysa þann vanda og skautaiðkendur fá að nota skautahallirnar í meira mæli til íþróttaiðkunnar sinnar. Þannig myndu skautaíþróttir á Íslandi komast á þann stall sem skautaíþróttir ættu að vera á. Skautasvell í Breiðholti, fjölmennasta hverfi borgarinnar gæti því verið fyrsta skref í slíkri áætlun. Skautaiðkunn er eitthvað sem flestum krökkum finnst skemmtileg og nú er alltaf verið að tala um að auka hreyfingu hjá börnum og unglingum. Ég er sannfærð um að fleiri svell myndu verða hvatning fyrir börn og fjölskyldur til hreyfingar og samveru.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information