Planta trjágróðri meðfram gangstígum við Norðlingaskóla bæði til að auka skjól og marka betur af skólalóðina. Þá þarf að bera fúavörn á grindvek umhverfis sparkvöll á skólalóðinni áður en það fúnar niður. Lagfæra þarf undirlag við leiktæki á skólalóðinni þar sem það er orðið slitið og varasamt.
Styð hugmyndina heilshugar
Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Lóð Norðlingaskóla er miðpunktur hverfisins og lóðin er mikið notuð af íbúum hverfisins á öllum aldri, jafnt sumar sem vetur.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation